Búin að fyrirgefa Ike Turner

Tina Turner á sviði í Köln árið 2009.
Tina Turner á sviði í Köln árið 2009. WOLFGANG RATTAY

Söngkonan Tina Turner segist vera búin að fyrirgefa fyrrverandi eiginmanni sínum Ike Turner en tónlistarmaðurinn sem dó árið 2007 beitti eiginkonu sína ofbeldi í hjónabandinu.  

People greinir frá því að það hafi tekið Tinu Tuner nokkra áratugi að fyrirgefa honum en söngkonan verður áttræð á næsta ári. Hún segist hafa fyrirgefið honum sem gömul manneskja en þegar hann bað hana um að fara á tónleikaferðalag með sér gat hún það ekki. 

„Það er allt farið, allt gleymt. Ég veit ekki hvað draumarnir eru um. Draumarnir eru þarna enn - ekki ofbeldið, reiðin,“ sagði söngkonan í nýlegu viðtali. „Ég velti því fyrir hvort ég byrgi eitthvað inni.“

Tina og Ike Turner létu pússa sig saman árið 1962, 14 árum seinna fór sönkonan frá eiginmanni sínum. Tina Turner giftist núverandi eiginmanni sínum, Erwin Bach, árið 2013 eftir 27 ára langt samband. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson