Það hefur varla farið framhjá neinum að konunglegt brúðkaup er í vændum, nú hafa boðskortin verið send út og eru þau sérlega falleg.
Harry prins mun ganga að eiga hina bandarísku Meghan Markle hinn 19. maí næstkomandi og hugsað verður fyrir hverju smáatriði. Fyrirtækið Barnard & Westwood var fengið til að hanna kortið en fyrirtækið hefur séð um prentun fyrir Windsor-fjölskylduna síðan 1985 og voru Harry og Meghan ekki að fara að breyta þeirri hefð.
Sérstök vél frá árinu 1930 var notuð við gerð kortanna og því ljóst að mikil vinna var lögð í öll smáatriði, meira að segja var amerískt blek notað á enskan pappír sem líklega endurspeglar heimkynni parsins.
Using American ink on English card, the invitations are printed in gold and black, then burnished to bring out the shine, and gilded around the edge. pic.twitter.com/gQpC6tDot0
— Kensington Palace (@KensingtonRoyal) March 22, 2018