Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja eiga von á sínu þriðja barni nú í apríl. Undirbúningur fyrir komu nýjasta ættingja bresku konungsfjölskyldunnar er á fullu og búið er koma upp girðingum fyrir utan Lindo-álmuna á St. Mary's-spítalanum í miðborg Lundúna þar sem gert er ráð fyrir að fæðingin fari fram.
Settar voru upp girðingar fyrir utan álmuna enda búist við því að fjölmiðlafólk sem og áhugafólk um bresku konungsfjölskylduna fjölmenni fyrir utan spítalann. Eldri börn þeirra Vilhjálms og Katrínar, þau Georg og Karlotta, komu einnig í heiminn í Lindo-álmunni.
Daily Mail greinir frá því að þau Katrín og Vilhjálmur viti ekki kynið en veðmangarar veðja á stelpu og kemur nafnið Mary sterkt inn sem líklegt nafn.