Chris Pratt tjáir sig um skilnaðinn

Anna Faris og Chris Pratt sögðu skilið við hvort annað …
Anna Faris og Chris Pratt sögðu skilið við hvort annað í fyrra. AFP

Leikarahjónin Chris Pratt og Anna Faris tilkynntu um skilnað sinn síðasta sumar. Pratt hefur lítið tjáð sig um skilnaðinn síðan þá en opnaði sig í nýjustu útgáfu Entertainment Weekly

„Að skilja er ömurlegt,“ sagði Pratt. „Þegar öllu er á botninn hvolft eigum við frábært barn sem á tvo foreldra sem elska hann mjög mikið. Og við erum að finna leið til þess að stjórna þessu og halda í vináttuna og halda áfram að vera góð við hvort annað.“ 

Þótt staðan sé ekki fullkominn segir Pratt þau bæði hafa það betra svona. Síðan þau tilkynntu um skilnað sinn hefur Pratt verið orðaður við nokkrar konur en Faris er í sambandi með kvikmyndatökumanninum Michael Bar­rett.

Chris Pratt og Anna Faris sjást hér kyssast við komuna …
Chris Pratt og Anna Faris sjást hér kyssast við komuna á frumsýningu í apríl 2017. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant