Myndir af Marie Danaprinsessu þar sem hún er ber að ofan í sólbaði eru til sölu hjá ljósmyndaskrifstofu. Danskir miðlar hafa fjallað um myndirnar en talsmaður konungsfjölskyldunnar segir erfitt að gera athugasemdir við myndir sem þegar eru komnar á netið.
Eksta Bladet greinir frá því að myndirnar af Marie, sem er gift Jóakim Danaprins, séu teknar í fríi í Saint-Tropez í Frakklandi. Sýna þær hvar Marie liggur á maganum á sólbekk ber að ofan og liggur Jóakim við hlið hennar. Náði götuljósmyndari að smella af þegar hún reisti sig upp á olnbogana og betur sást í brjóst hennar.
Talsmaður konungsfjölskyldunnar svaraði því ekki þegar blaðamaður Ekstra Bladet spurði hvort að eitthvað yrði gert til þess að fjarlægja myndirnar.
Katrín hertogaynja lenti í svipuðu máli en myndirnar af henni birtust í tímaritunum Closer og ollu miklum usla í Bretlandi. Myndirnar voru teknar með aðdráttarlinsu af Katrínu á brjóstunum og einnig Vilhjálmi að bera sólarvörn á rassinn á Katrínu. Fljótlega eftir birtingu bönnuðu franskir dómstólar frekari birtingar á myndunum.