Önnur þáttaröðin af The Handmaid’s Tale er væntanleg og eftirvæntingin er mikil um allan heim. Sjónvarpsþáttaröðin hefur vakið mikið umtal og hlaut meðal annars Golden Globe-verðlaun fyrir besta dramaþáttinn og Emmy-verðlaun sem besta sjónvarpsefni í flokki dramaþátta.
Þáttaröðin er byggð á samnefndri skáldsögu kanadíska rithöfundarins Margaret Atwood sem kom út árið 1985 og naut strax mikilli vinsælda. Þessi hrollvekjandi dystópía talaði heldur betur inn í samtíðina og er margt líkt í henni með því sem á sér stað um víða veröld.
Nú hafa þernur úr þáttunum sést á göngu um Reykjavík og hefur það vakið vakið forvitni meðal vegfarenda. Ekki er vitað hvað þær eru að gera eða í hvaða tilgangi en margt bendir til þess að þetta sé hluti af kynningu á nýrri þáttaröð sem er væntanleg 26. apríl.