Í dag gaf Jón Jónsson tónlistarmaður út myndband við lagið Lost í lifandi flutningi. Jón tók lagið upp á Nasa deginum áður en staðurinn var rifinn.
Nasa var einn vinsælasti skemmtistaður landsins um langa hríð þangað til ákveðið var að rífa staðinn.
Oftar en ekki eru myndbönd tekin upp á rosalegar græjur. Jón fer aðeins aðrar leiðir í sínu myndbandi því það er tekið upp á snjallsíma án þess að það komi mikið niður á gæðunum. Um er að ræða Samsung S9 sem ku vera ansi góður gripur, ekki bara til að tala í heldur líka til að búa til skapandi listaverk.