Heimsfræga rokkhljómsveitin Guns N' Roses er á leið til landsins og ætlar að halda risatónleika á Laugardalsvelli þann 24. júlí. Í tilkynningu segir að um stærstu tónleika sem haldnir hafa verið á Íslandi sé að ræða.
Það eru skipuleggjendur Secret Solstice sem ætla að flytja hljómsveitina til landsins. Sviðið verður 65 metra breitt, en um það bil viku mun taka að undirbúa Laugardalsvöll fyrir tónleikana. Búnaður verður fluttur til landsins í 35 gámum, og með hljómsveitinni koma 150 manns til að sjá um uppsetningu.
Guns N' Roses var stofnuð í Los Angeles árið 1985 og er líklega ein allra stærsta hljómsveit rokksögunnar og hefur hún selt yfir 100 milljón plötur á ferli sínum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Miðaverð á tónleikana verður frá 18.900 krónum. Miðasala fer fram á www.show.is og hefst hún klukkan 10 þann 1. maí.