Trump gekk erfiðlega að leiða eiginkonu sína

Samskipti Melaniu og Donalds Trumps vekja oft athygli.
Samskipti Melaniu og Donalds Trumps vekja oft athygli. AFP

Forsetafrúin, Melania Trump, var ekki á því að leiða eiginmann sinn í gær þegar Trump-hjónin stilltu sér upp með forsetahjónum Frakklands. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem klaufaleg samskipti hjónanna komast í fréttir en Melania hefur áður reynt að komast hjá því að leiða eiginmann sinn. 

Twitter-notendur komu auga á hvernig Melania hunsaði Donald þegar hann læddi fingri sínum í hönd hennar til þess að leiða hana. Forsetinn gafst ekki upp en Melania streittist á móti þangað til að hún virðist hafa gefist upp og tók hún loks í hönd eiginmanns síns. 

Mikið hefur gengið á hjá Donald Trump að undanförnu og ekki bara á sviði stjórnmálanna. Klámmyndaleikkonan Stormy Daniels steig fram á árinu þar sem hún sagði frá sambandi sínu og Donalds Trump. Daniels segist hafa átt í sambandi við Trump á árunum 2006 til 2007, skömmu eft­ir að eig­in­kona hans Mel­ania Trump eignaðist barn þeirra.

Hér má sjá Donald Trump reyna að taka í hendi …
Hér má sjá Donald Trump reyna að taka í hendi Melaniu Trump. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant