Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tveimur vikum. Barnið kom í heiminn stuttu eftir að fréttir voru fluttar af framhjáhaldi kærasta hennar en Kardashian enn sögð óákveðin hvað hún eigi að gera í sambandi við hann.
„Hún er komin með annan fótinn út um dyrnar en heldur í það að þau Tristan geti látið sambandið ganga,“ sagði heimildamaður E!. „Hún er ekki enn búin að gefast upp á honum en hefur ekki verið að einbeita sér að sambandinu. Þegar þau hittast snýst allt um barnið og að ala það upp saman. Khloe er orðin ástfangin af honum aftur eftir að hún sá hann sinna True, en hún veit að hún þarf að taka eitt skref aftur á bak og taka rétta ákvörðun.“
Kardasian og Thompson búa í Cleveland en Thompson hefur ekki dvalið á heimili þeirra að undanförnu en heimsækir þau oft. Stjarnan hefur ekki tekið ákvörðun um framtíðina en það er sagt trufla hana að allir nákomnir hennar vilja að hún hætti með barnsföður sínum.