Vilhjálmur verður svaramaður Harry

Vilhjálmur verður við hlið Harry þegar hann og Meghan Markle …
Vilhjálmur verður við hlið Harry þegar hann og Meghan Markle ganga í hjónaband. AFP

Vilhjálmur Bretaprins verður í hlutverki svaramanns Harry bróður síns þegar Harry gengur að eiga Meghan Markle 19. maí. Harry var svaramaður Vilhjálms þegar hann kvæntist eiginkonu sinni, Katrínu hertogaynju. 

Í tilkynningu Kensington-hallar kemur fram að Vilhjálmi hafi þótt það heiður að vera beðinn um að vera svaramaður og hann hlakki til að styðja bróður sinn á stóra daginn. 

Valið þarf ekki að koma á óvart en meiri spenna ríkir um hver mun vera brúðarmeyja Meghan. Leikkonan Priyanka Chopra greindi frá því í viðtali við People að hún myndi ekki vera brúðarmeyja í brúðkaupi Harrys og Meghan. 

Aðrar vinkonur Meghan koma til greina eins og stílistinn Jessica Mulroney en þær Meghan urðu góðar vinkonur þegar Meghan bjó í Toronto. Fatahönnuðurinn Misha Nonoo þykir einnig líkleg en hún er sögð hafa komið þeim Meghan og Harry saman. Vinkona Meghan frá háskólaárum hennar, Lindsay Roth, er einnig sögð koma til greina en Meghan var brúðarmeyja í brúðkaupi hennar fyrir nokkrum árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson