Rétt rúmar tvær vikur er í brúðkaup ársins þar sem Harry Bretaprins mun ganga að eiga Meghan Markle. Bróðir Meghan virðist halda að það sé enn séns á því að Harry hætti við.
„Það er ekki of seint, Meghan Markle er greinilega ekki rétta kona konan fyrir þig,“ svona hefst handskrifað bréf bróður Meghan, Thomas Markle yngri, til Harry Bretaprins sem In Touch birti.
„Eftir því sem styttist í konunglega brúðkaupið ykkar er mér það ljóst að þetta er stærstu mistök í sögu konunglegra brúðkaupa. Ég skil ekki af hverju þú sérð ekki hina raunverulegu Meghan sem allir heimurinn sér núna,“ Heldur Markle yngri áfram.
Í bréfinu segir hann Meghan hafi komið illa fram við föður sinn og litla Hollywood-frægðin sem hún hafi öðlast hafi breytt henni í grunnhyggna konu. Hann er heldur ekki ánægður með að fjölskyldu hans hafi ekki verið boðið í brúðkaupið og í staðinn hafi hún boðið fullt af ókunnugu fólki.