DiCaprio með stjúpdóttur Al Pacino

Leonardo DiCaprio er kominn með nýja kærustu.
Leonardo DiCaprio er kominn með nýja kærustu. AFP

Leikarinn Leonardo DiCaprio virðist vera kominn með nýja kærustu en undanfarið hafa hann og argentínska fyrirsætan og leikkonan Camila Morrone sést mikið saman. 

Daily Mail birti myndir af þeim þar sem þau létu vel að hvort öðru fyrir utan veitingastað í Los Angeles í síðustu viku. Þetta er þó ekki eina skiptið sem parið hefur sést saman en fyrst bárust fréttir af sambandi þeirra í desember. 

DiCaprio er 43 ára en Morrone er hins vegar tvítug dóttir leikkonunnar Lucilu Solá. Al Pacino er stjúpfaðir Morrone en móðir Morrone hefur átt í sambandi við stórleikarann í átta ár eða frá því að Morrone var 12 ára. Það mætti því orða það þannig að Al Pacino sé orðinn tengdafaðir DiCaprio. 

Gracias de nuevo @voguemexico y @morellibrothers 🎥

A post shared by Camila Morrone (@camimorrone) on Apr 25, 2018 at 11:10am PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant