Brúin greiddi leiðina að sviðinu

Manninum tókst að hrifsa hljóðnem­ann af SuRie og náði hann …
Manninum tókst að hrifsa hljóðnem­ann af SuRie og náði hann að tjá sig í sjö sekúndur áður en öryggisverðir fjarlægðu hann af sviðinu. AFP

Maðurinn sem stökk upp á svið í miðju atriði bresku söngkonunnar SuRie á úrslitakvöldi Eurovision í gærkvöldi klifraði upp á myndavél og komst þaðan upp á brú sem leiddi inn á sviðið. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur greint frá því að framkvæmd verði formleg innri rannsókn á hvernig manninum tókst að trufla atriðið.

Manninum tókst að hrifsa hljóðnem­ann af SuRie og sam­kvæmt bresk­um miðlum þá öskraði hann „við krefj­umst frels­is“ og kvartaði und­an nas­ist­um í bresk­um fjöl­miðlum. Örygg­is­verðir hand­sömuðu mann­inn þegar hann hafði verið á sviðinu í ör­skamma stund.

„Hann var fjarlægður af sviðinu eftir sjö sekúndur,“ segir fulltrúi EBU í samtali við BBC. Maðurinn hefur verið yfirheyrður af lögreglu.

SuRie lét atvikið ekki hafa mikil áhrif á sig og kláraði flutninginn af miklum krafti. Henni bauðst að flytja lagið aftur en afþakkaði það. „Ég hef alltaf sagt að allt geti gerst í Eurovisi­on,“ skrifaði SuRie á Twitter eft­ir keppn­ina. Margir tölu að atvikið myndi skila SuRie nokkrum atkvæðum í símakosningunni en það varð hins vegar ekki niðurstaðan þar sem breska atriðið hafnaði í 24. sæti af 26 mögulegum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson