Marin eftir uppákomuna á sviðinu

Maðurinn reif hljóðnemann af SuRie.
Maðurinn reif hljóðnemann af SuRie. AFP

Maður rudd­ist upp á sviðið þegar SuRie frá Bretlandi flutti fram­lag Breta, „You decide“ í Eurovisi­on-keppn­inni. SuRie er nú komin heim til Bretlands en segist vera marin eftir boðflennuna. 

SuRie var gestur í morgunþætti í ITV-sjónvarpsstöðvarinnar þar sem hún lýsti upplifun sinni af uppákomunni. Söngkonan segist ekki hafa áttað sig á að maðurinn hafi verið kominn upp á svið fyrr en hann var alveg kominn upp að henni. „Það var enginn tími til þess að finna fyrir hræðslu,“ sagði hún, spurð að því hvort hún hafi orðið hrædd. 

Maðurinn reif hljóðnema úr hendi SuRie og fékk hún mar á höndina við það. Í viðtalinu segist hún einnig finna aðeins til í annarri öxlinni þar sem maðurinn kom upp að henni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson