Páll Óskar vill sniðganga Eurovision

Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur RÚV til að taka ekki þátt …
Páll Óskar Hjálmtýsson hvetur RÚV til að taka ekki þátt í Eurovision á næsta ári. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson hefur nú bæst í raðir þeirra sem vilja að Íslendingar taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári. „Eins og ég elska Eurovision mikið, þá finnst mér litið mál - réttara sagt - hið besta mál að sitja hjá og sniðganga keppnina hjá þjóðum sem hafa gerst brotlegar við alþjóðalög og stunda mannréttindabrot og blóðuga stríðsglæpi næstum dag hvern,“ segir Páll Óskar á Facebook-síðu sinni.

„Upplýsingar um sögu Ísraels flæða núna á gerfihnattaöld til fólks sem hefur kannski hingað til verið glórulaust um hve alvarlegt ástandið er á Gaza svæðinu. Ég var einn af þeim glórulausu. Ég hafði ósköp litla hugmynd um hvað væri í gangi þarna síðast þegar Íslendingar kepptu í Jerúsalem árið 1999.“

Ímyndarherferð Ísraels sé nú að koma í bakið á þar lendum stjórnvöldum og  Eurovision blikni og bláni „í samanburði við yfirganginn, stjórnsemina og frekjuna sem sponsuð af Bandaríkjunum og nú á að fara í fegrunaraðgerð á ímynd Ísraels út á við með Eurovision.“

Með því að sniðganga Eurovision gefist kjörið tækifæri til að „mótmæla fjöldamorðum Ísraelhers á Palestínu og setja Ísrael mörk á alþjóðavísu.“

Hvetur Páll Óskar því næst RÚV til að nýta tækifærið og mótmæla með fjarveru Íslands. „Þessu afneitunar-gleðipartíi tökum við ekki þátt í. Skemmtiefni, dægurlög og glamúrgallar eru nefnilega víst bullandi pólitískt mál“ og RÚV geti gert margt frábært við peningana t.d. með meira tónlistarefni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler