Margir urðu fyrir vonbrigðum er Harry og Meghan kysstust ekki eftir að hafa verið gefin saman af erkibiskupnum af Kantaraborg í kapellu heilags Georgs í dag.
En ekki örvænta: Kossinn kom stuttu síðar á tröppum kapellunnar og hér eru myndir af honum.
Harry og Meghan bjóða gestunum sínum sexhundruð nú til veislu. Þangað fóru þau í hestvagni sem dreginn var af hvítum hestum. Vagninn lagði þó fyrst leið sína í um stræti og torg, á fyrirfram ákveðinni leið, þar sem þúsundir hafa komið sér fyrir til að fagna brúðhjónunum.
Á mynd sem hér fylgir að neðan má vel sjá kórónuna sem Meghan ber sem og giftingarhringinn.