Vinkona Meghan tók Pippu í brúðkaupinu

Jessica Mulroney í bláu í brúðkaupi Harry og Meghan. Pippa …
Jessica Mulroney í bláu í brúðkaupi Harry og Meghan. Pippa Middleton í hvítu í brúðkaupi Vilhjálms og Katrínar. Samsett mynd

Afturendi Pippu Middleton vakti mikla athygli í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju. Þegar Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja giftu sig á laugardaginn lét Pippa lítið fyrir sér fara og leyfði öðrum afturenda að eiga sviðsljósið. 

Besta vinkona Meghan, stílistinn Jessica Mulroney, er af mörgum fjölmiðlum sögð hafa átt sína „Pippu-stund“ í brúðkaupinu þar sem hun fylgdi börnum sem tóku þátt í brúðkaupinu upp kirkjutröppurnar. 

Samkvæmt heimildum Page Six  var Mulroney meðvituð um hvað hún var gera. Mulroney var klædd í fallegan bláan sérsniðin kjól frá Di Carlo Couture sem leyfði afturendanum að njóta sín.

Á galakvöldi í Toronto í síðasta mánuði er ljósmyndari sagður hafa beðið Mulroney að stilla sér upp. „Ég ætla gefa þér smá Pippu,“ á Mulroney að hafa sagt og snúsið sér við svo ljósmyndarinn gæti tekið mynd af rassinum á sér. 

Augu heimsbyggðarinnar voru á Jessica Mulroney á laugardaginn.
Augu heimsbyggðarinnar voru á Jessica Mulroney á laugardaginn. AFP
Pippa Middleton vakti mikla athygli í brúðkaupi systur sinnar og …
Pippa Middleton vakti mikla athygli í brúðkaupi systur sinnar og Vilhjálms Bretaprins árið 2011. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson