Er að missa hárið

Jada Pinkett Smith notar túrban til þess að fela hármissinn.
Jada Pinkett Smith notar túrban til þess að fela hármissinn. AFP

Jada Pinkett Smith hefur sést með túrban upp á síðkastið en ástæðan er sú að leikkonan hefur verið að missa hárið. Pinkett Smith opnaði sig um vandamálið í Facebook-þætti sínum þar sem hún ræðir hin ýmsu málefni við móður sína og dóttur á opinskáan hátt.  

„Ég hef verið að fá fullt af spurningum um það af hverju ég hafi verið að nota þennan túrban,“ sagði Pinkett Smith. „Ég hef átt í vandamáli með hárlos. Og ég var dauðhrædd þegar það byrjaði.“ Leikkonan tók fyrst eftir vandamálinu þegar hún var að þvo á sér hárið í sturtu en hélt allt í einu á stórum hárbrúski. 

Í fyrstu byrjaði Pinkett Smith sem skartaði lengi vel miklu og fallegu hári að klippa á sér hárið. Nú gengur hún oft um með túrban og kann að meta það. 

Læknar hafa ekki greint hana en hún telur að hárlosið sé tengt stressi. Þrátt fyrir að hafa verið hrædd í byrjun segir Pinkett Smith að vandamálið gæti verið verra enda fólk þarna úti sem glími til dæmis við krabbamein. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant