Erfitt að halda sambandi við börnin

Caitlyn Jenner er mikið ein.
Caitlyn Jenner er mikið ein. AFP

Caitlyn Jenner býr ein í húsi sínu í Malibu í Kaliforníu með hundinum Bertu. Samskipti við börnin hafa minnkað síðustu ár eftir hún fór í kynleiðréttingu. Í nýju viðtali við Broadly  greindi hún frá því að hún væri mikið ein. 

„Ég eyði miklum tíma hér ein í húsinu. Ég á mörg börn, en stundum út af aðstæðum, að halda nánu sambandi við börnin þín er erfitt,“ sagði Jenner. „Þau eiga öll sitt líf. Þau hafa haldið sína leið.“

„Við erum bara mannleg, við erum bara hér í mjög stuttan tíma. Við komum og við förum og í lokin þegar allt hefur verið sagt og gert, vonandi verður fjölskylda þín þar,“ bætti Jenner við í viðtalinu. 

Caitlyn Jenner sem hét Bruce Jenner fyrir kynleiðréttinguna á sex börn og fjögur stjúpbörn. Í fyrra greindi hún frá því að hún talaði ekki lengur við stjúpbörn sín, Kardashian-systkinin fjögur þau Kim, Khloé, Kourtney og Rob, svo virðist sem lítið hafi breyst síðan þá. 

Khloe Kardashian og Kim Kardashian eru í litlum samskiptum við …
Khloe Kardashian og Kim Kardashian eru í litlum samskiptum við Caitlyn Jenner. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson