Vill þrisvar sinnum hærri upphæð frá Spears

Britney Spears hefur það ekki slæmt fjárhagslega.
Britney Spears hefur það ekki slæmt fjárhagslega. AFP

Barnsfaðir Birtney Spears, Kevin Federline, stóð við það sem hann hafði áður gefið út og hefur farið í mál við Britney Spears og krefst hærra meðlags. Vefurinn The Blast hefur undir höndum dómsskjöl sem lögmaður Federline lagði fram. 

Þar segir Federline sem var áður dansari hjá Spears að hann sé orðinn of gamall til þess að dansa. Hann starfi nú sem plötusnúður og áætluð laun hans á þessu ári eru um 3.000 dollarar á mánuði eða rúmlega 317 þúsund íslenskar krónur. Hann telur sig þéna minna en eitt prósent af því sem barnsmóðir hans þénar. 

Federline fær 20 þúsund dollara á mánuði frá Spears en það eru rúmar tvær milljónir íslenskra króna. Samkomulagið var gert árið 2007 en nú telur Federline forsendurnar aðrar og vill hærri upphæð. Í viðtali við UsWeekly segir lögmaður Federline að fyrrverandi dansarinn vilji fá að minnsta kosti þrisvar sinnum meira en hann fær nú frá Spears og er það einungis til þess að koma til móts við þarfir barna þeirra. 

Britney Spears og Kevin Federline giftu sig árið 2004 en söngkonan sótti um skilnað í lok árs árið 2006. Saman eiga þau synina Sean Preston Federline 12 ára og Jayden James Federline 11 ára. 

Britney Spears.
Britney Spears. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson