Will Smith gefur út lag fyrir HM

Nicky Jam og Will Smith ætla að gefa út lag …
Nicky Jam og Will Smith ætla að gefa út lag í tengslum við heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu. Hvort það verði hið opinbera lag keppninnar er ekki komið á hreint. Ljósmynd/Instagram

Svo virðist sem bandaríski leikarinn og rapparinn Will Smith muni koma að gerð og flutningi á lagi heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem hefst eftir rúmar þrjár vikur.

Smith birtir mynd af sér á Instagram ásamt söngvaranum og lagahöfundinum Nicky Jam þar sem þeir stilla sér upp mér HM-boltanum og brosa breitt. Á myndina merkir hann einnig Diplo og söngvarann Era Istrefi. Undir myndina skrifar hann svo: One Life to live. Live it Up. #WorldCup

BBC greinir frá því að lagið verði gefið út á föstudag. Heiti lagsins hefur ekki verið gefið upp en myndatextinn gefur ágætis vísbendingu. Ekki liggur heldur ljóst fyrir hvort um opinbert lag mótsins er að ræða. 

Venju samkvæmt er lag heimsmeistaramótsins frumflutt í upphafi móts en flytjendurnir sjálfir hafa ýmist komið fram í upphafi eða í lok mótsins.

Opinbert lag heimsmeistaramótsins í Brasilíu árið 2014 var We Are One (Ole Ola) í flutningi Pitbull, Jennifer Lopez og Claudia Leitte.

Flestir muna svo eftir HM-laginu í Suður-Afríku árið 2010 þegar Shakira söng Waka Waka.


mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson