Jolie öskuill yfir forræðisdeilunni

Angelina Jolie og Brad Pitt eru skilin.
Angelina Jolie og Brad Pitt eru skilin. mbl.is/AFP

Angelina Jolie og Brad Pittu slitu hjónabandi sínu árið 2016 en enn er ekki búið að finna lausn á forræðisdeilu þeirra. Jolie er sögð brjáluð yfir því að að ekki sé komin lausn á málið þar sem hún vill taka börnin með til London þar sem hún verður við tökur á myndinni Maleficent 2.

Heimildamaður Page Six segir að leikkonan sé örg yfir því hvernig ferlið gangi. „Þau eru að finna út úr því hvernig það myndi ganga, en hún er ekki ánægð.“ Heimildamaður segir að Jolie sé svo fýld yfir stöðunni að fólk í kringum hana sé orðið þreytt á því. 

Þegar Jolie sótti um skilnað óskaði hún eftir forræði yfir börnum þeirra sex. Pitt hefur tekið sig á eftir að Jolie sótti um skilnað og hefur farið í meðferð og heimsótt sálfræðing. „Ég hætti öllu nema drykkju þegar ég stofnaði til fjöl­skyldu. En þetta síðasta ár þá var ég ekki að tak­ast á við hlut­ina og ég drakk of mikið,“ sagði Pitt í viðtali í fyrra við GQ-tíma­ritið. 

Angelina Jolie tók son sinn Pax með á Golden Globe.
Angelina Jolie tók son sinn Pax með á Golden Globe. mbl.is/AFP
Angelina Jolie ásamt börnum sínum Shiloh Jolie-Pitt, Zahöra Jolie-Pitt og …
Angelina Jolie ásamt börnum sínum Shiloh Jolie-Pitt, Zahöra Jolie-Pitt og samstarfskonu sinni Loung Ung. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant