Iceland Airwaves á 20 ára afmæli í ár og það verður haldið hátíðlega upp á það með ýmsum sérviðburðum. Ólafur Arnalds spilar á tvennum tónleikum þar sem hann mun forsýna sérstaka tónleika fyrir þrjú píanó í Þjóðleikhúsinu.
Högni mun einnig halda sérstaka tónleika í Þjóðleikhúsinu þar sem hann kemur fram með kór og strengjasveit. Íslenska rappið kemur einnig sterkt inn með Sturlu Atlas og Emmsjé Gauta og Sóley mun galdra fram sína einstöku ljúfa tóna, að því er fram kemur í tilkynningu.
Iceland Airwaves er einnig meðlimur Keychange-verkefnisins þar sem tónlistarhátíðir skuldbinda sig til þess að hafa minnst fimmtíu prósent af hljómsveitum þar sem konur, kynsegin eða trans fólk eru meðlimir. Keychange-hljómsveitirnar í ár eru Kat Frankie, Mari Kalkun, Mueverloreina, Tawiah og Vaz.