Segist bara hafa borðað hollt

Rebel Wilson.
Rebel Wilson. AFP

Leikkonan Rebel Wilson prýðir forsíðu ástralska Vogue. Wilson lítur vel út á myndinni en sumum þykir leikkonan sem þekkt er fyrir línur sínar líta út fyrir að vera heldur grönn á forsíðumyndinni. 

Ekki er óalgengt að átt sé við myndir í tískutímaritum á borð við Vogue og spratt sú umræða upp á Twitter að búið væri að grenna Wilson á forsíðumyndinni. Wilson svaraði þó fyrir sig og sagði svo ekki vera. „Ég borðaði bara hollt og æfði í einn mánuð fyrir myndatökuna,“ skrifaði hún en bætti því við að strax eftir á hefði hún fengið sér súkkulaðiköku. 

Til þess að sýna hversu lítið breyttar myndirnar af henni væru birti hún einnig mynd af sér í myndatökunni og bar saman við mynd af lokaútgáfunni á Twitter. Hún bað fólk þar með um að hætta að segja að myndirnar væru mikið breyttar þar sem þær væru það ekki. 




mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson