Enn og aftur búin að gjörbreyta hárinu

Kim Kardashian skartaði líka ljósum lokkum síðastliðið haust.
Kim Kardashian skartaði líka ljósum lokkum síðastliðið haust. mbl.is/AFP

Margir hugsa sig tvisvar um áður en þeir breyta algjörlega um hárlit en Kim Kardashian skiptir bara strax aftur um lit ef hún verður leið á hárlitnum sínum. Raunveruleikastjarnan sem er þekkt fyrir dökkan hárlit er enn og aftur orðin ljóshærð. 

Þriggja barna móðirin litaði hárið á sér ljóst aftur í tilefni af fjögurra ára brúðkaupsafmæli hennar og Kanye West í gær, fimmtudag. Kardashian sem giftist rapparanum 24. maí árið 2014 segir að ljósa hárið sé í uppáhaldi hjá West. 

Ekki er langt síðan Kardashian var síðast ljóshærð en hún litaði hárið ljóst í september í fyrra. Undanfarna mánuði hefur hún skartaði dökkum hárlit í anda hennar náttúrulega hárlitar og í byrjun maí mætti hún á Met gala í New York með sítt dökkt hár. 

Kim Kardashian með dökkt hár í byrjun maí.
Kim Kardashian með dökkt hár í byrjun maí. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson