Leikarinn Mark Wahlberg er duglegur að æfa en einnig duglegur að sýna vöðvastæltan líkamann með því að birta myndir af sér berum að ofan. Þó svo að aðdáendur Wahlberg séu ánægðir með uppátækið eru dætur hans það ekki.
„Pabbi farðu í bol,“ segist Wahlberg fá að heyra oft en málið kom upp þegar Wahlberg var gestur í þætti Ellenar DeGeneres. Leikarinn á fjögur börn með eiginkonu sinni en elsta dóttirin er 14 ára.
Wahlberg er duglegur að mæta í ræktina og greindi hann frá því að þegar hann væri í fríi vaknaði hann klukkan hálfsex til þess að æfa. Venjulega segist hann kannski vakna klukkan tvö á nóttinni til að fara á æfingu og í golf áður en að fjölskyldan vaknar. Hann fer svo að sofa klukkan sjö, hálfátta ef hann er í stuði.
A post shared by Mark Wahlberg (@markwahlberg) on Jan 25, 2018 at 5:43am PST