Hvað mun Trump ganga langt?

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, funduðu …
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, funduðu fyrir skömmu um fangelsismál og refsingar. Mynd/ @realDonaldTrump

Trump varð við beiðni Kim Kardashian West um að milda dóm yfir Alice Marie Johnson, langömmu á sjötugsaldri, sem hlaut lífstíðardóm fyrir minni háttar fíkniefnabrot fyrir tugum ára. Þáttastjórnendur Magasínsins fengu lögmanninn Ómar Valdimarsson í heimsókn til að svara einfaldlega þeirri spurningu hvort Trump mætti gera þetta og hvort það væri tilefni til að óttast það að Hollywood stjörnur fari að nýta sér fjölmiðla- og samfélagmiðla notkun Trump, eða hreinlega athyglissýki forsetans, með mál sem þessi. 

Hörð stefna í afbrotamálum

Trump og Kardashian funduðu um fangelsismál í lok maí og fannst mörgum ólíklegt að forsetinn yrði við beiðni Kim, þar sem hann lýsti því strax yfir að hans ríkisstjórn myndi ávallt taka harða stefnu í afbrotamálum. Mynd sem birtist af þeim tveimur vegna umrædds fundar, þótti einnig sýna fram á að Trump tæki fundi þeirra ekki mjög alvarlega. 

Obama náðaði tæplega 2.000 manns

Ómar hafði tekið saman upplýsingar um náðanir bandaríkjaforseta og kom í ljós að Obama hafði náðið 1.927 einstaklingi í sinni embættistíð, þarf af 330 síðasta daginn í embætti. Áhugavert sagði hann, af þessum tæplega 2.000 einstaklingum voru 504 einstaklingar sem voru að sitja af sér lífstíðarrefsingu.  




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant