The Chemical Brothers til Íslands

Frá tónleikum The Chemical Brothers.
Frá tónleikum The Chemical Brothers. Ljósmynd/Wikipedia.org

Breska hljómsveitin The Chemical Brothers hefur boðað komu sína til Íslands og mun koma fram á einum tónleikum í Laugardalshöll 20. október.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hr. Örlygi.

The Chemical Brothers er flestum tónlistarunnendum vel kunn enda hefur hún starfað frá árinu 1989. Sveitin hefur gefið út 6 breiðskífur sem allar hafa ratað á toppinn á breska vinsældalistanum.

The Chemical Brothers eru brautryðjendur á sviði raftónlistar en hafa þá sérstöðu innan þeirrar tónlistarstefnu að ná jafnt til aðdáenda hefðbundinnar rokktónlistar sem danstónlistar, að því er segir í tilkynningunni. Einnig kemur þar fram að tónleikar sveitarinnar séu mikið sjónarspil.

„Tónleikagestir í Laugardalshöll munu fá allan pakkann því The Chemical Brothers koma hingað með öll sín tæki og tól til að byggja upp sem magnaðasta upplifun fyrir íslenska aðdáendur,“ segir í tilkynningunni.

Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll laugardaginn 20. október.

Miðasala fer fram á Tix.is og hefst hún 19. júní kl. 10.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant