Taktu þátt í steggjun Hallgríms Ólafssonar

Það er ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að sitja sína eigin heiðurstónleika. Það verður þó raunin í kvöld þegar leikarinn góðkunni Hallgrímur Ólafsson mun ganga í sal Bíóhallarinnar á Akranesi á tónleika honum til heiðurs.

Hallgrímur Ólafsson gaf út plötuna Halli Melló fyrir allmörgum árum.
Hallgrímur Ólafsson gaf út plötuna Halli Melló fyrir allmörgum árum.

Hallgrímur er Íslendingum flestum kunnur sem víkingaklapparinn taktlausi Magnús Magnús Magnússon. Hann hefur starfað sem leikari síðastliðin 11 ár við leikhús landsins og tekið þátt í mörgum af vinsælustu uppfærslum síðari ára. Áður en að leiðin lá í leiklistina hafði Hallgrímur getið sér gott orð sem trúbador og tónlistarmaður.

Það sérstaka við þetta allt saman er að Hallgrímur sjálfur veit ekki af því að tónleikarnir eru um hann. Enda eru tónleikarnir liður í steggjun leikarans og slíkar athafnir ávallt sveipaðar mikilli dulúð. Ljóst er þó að hér hefur öllu verið tjaldað til og hvergi slegið af í metnaði og framsetningu.

Á tónleikunum verða rifjaðar upp lagaperlur eftir Hallgrím sem alltof sjaldan fá að heyrast. Einnig verða flutt lög úr þekktum söngleikjum á borð við Grease, Hárið, Rent ofl. ásamt Leikhúsperlum sem Hallgrímur hefur flutt á ferlinum. Lofað er mikilli söngskemmtun, enn meira gríni og aldrei að vita nema að víkingaklapp Magnúsar Magnúsar Magnússonar komi við sögu.

Kynnir er Ólafur Páll Gunnarsson en á tónleikunum koma Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi, Gói, Jóhannes Haukur, Rúnar Freyr, Atli Þór og leynigestur ásamt hljómsveit. Hana skipa:

Birgir Þórisson - Hljómborð 
Jón Borgar Loftsson - Trommur 
Sigurþór Þorgilsson - bassi 
Þorgils Björgvinsson – Gítar

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson