Flutt á spítala eftir ofbeldisfulla hegðun

Heather Locklear var flutt á spítala.
Heather Locklear var flutt á spítala. AFP

Vandræði leikkonunnar Heather Locklear halda áfram. Á sunnudaginn hringdi móðir hennar á neyðarlínuna og var leikkonan í kjölfarið flutt á spítala til þess að gangast undir geðmat. 

TMZ greinir frá því að foreldrar Melrose Place-stjörnunnar hafi farið heim til hennar á sunnudaginn. Er Locklear sem er 56 ára sögð hafa verið ofbeldisfull, tekið um háls móður sinnar og lamið föður sinn. Í símtalinu kemur einnig fram að Locklear hafi hótað því að skjóta sjálfa sig. 

Í febrúar var Locklear handtekin fyrir heimilisofbeldi og að ráðast á lögreglu en Locklear var ósamvinnufús við handtökuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant