Zayn Malik, sem best er þekktur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni One Driection, segir að hann vilji ekki skilgreina samband sitt við ofurfyrirsætuna Gigi Hadid. Zayn og Gigi byrjuðu fyrst saman í lok árs 2015.
Í mars síðastliðinn gáfu þau út sitt hvora yfirlýsinguna á samfélagsmiðlum að þau hafi ákveðið að hætta saman. Í lok apríl sáust þau svo kyssast á götum New York. Það hefur því verið á huldu hvort þau séu saman eða ekki.
Í viðtali við GQ sagði Zayn svo að þau séu fullorðin og þurfi ekki að skilgreina samband sitt frekar. Samkvæmt heimildarmanni E! hafa þau eytt tíma saman upp á síðkastið, en hvort það er á rómantísku nótunum liggur ekki fyrir.