Svona kynntust Beyoncé og Jay-Z

Beyoncé og Jay-Z kynntust árið 2000.
Beyoncé og Jay-Z kynntust árið 2000. AFP

Tónlistarparið Beyoncé og Jay-Z hafa gengið í gegnum margt en eru þó enn saman. Hjónin gáfu út plötu saman á dögunum en þar greinir Jay-Z frá því hvernig hann kynntist söngkonunni en 18 ár eru síðan þau hittust fyrst. 

Á vef UsMagazine er farið yfir texta Jay-Z þar sem kemur í ljós að þau hafi fyrst hist á hátíð á vegum MTV í Cancun í Mexíkó í mars árið 2000. Ef eitthvað er að marka texta Jay-Z þá sat hann við hliðina á Beyoncé í flugélinni á leiðinni heim til New York frá Mexíkó. Þau töluðu þó ekki saman fyrr en tveimur árum seinna.

Í texta hans kemur einnig fram að hann hafi leyft Beyoncé að velja dagsetningu fyrir stefnumót þeirra. Veitingastaðurinn Nobu varð fyrir valinu og segir tónlistarmaðurinn að hann hafi tekið vin sinn með sér á stefnumótið og telur hann það hafa verið fyrstu heimskulegu mistök sín. 

Hjónin giftu sig árið 2008 en söngkonan sem var þá 26 sagði á þeim tíma að það hafi verið skýrt að hún hafi aldrei ætlað að gifta sig fyrr en hún væri orðin 25 ára. „Ég trúi því ekki að þú elskir sama hlutinn þegar þú ert tvítug og þú gerir þrítug,“ sagði söngkonan. 

Beyoncé Knowles og eiginmaður hennar Jay-Z.
Beyoncé Knowles og eiginmaður hennar Jay-Z. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant