Eva Longoria orðin móðir 43 ára

Eva Longoria eignaðist barn 19. júní.
Eva Longoria eignaðist barn 19. júní. AFP

Leikkonan Eva Longoria eignaðist son í gær, þriðjudag. Um er að ræða fyrsta barn Longoriu sem varð 43 ára í mars en hún er gift mexíkóska viðskiptamanninum José Bastón. 

Helo! USA greindi fyrst frá fæðingunni en drengurinn fékk nafnið Santiago Enrique Bastón. Fjölmiðillinn fékk einkaréttinn af fyrstu myndinni af barninu. Myndin sýnir Longoriu með soninn í fanginu á fæðingardeildinni. 

Eiginmaður Longori á fyrir þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni. Í mars opnaði Longoria sig um móðurhlutverkið. „Við eigum nú þegar þrjú börn, ég á þrjú stjúpbörn svo það er ekki eins og þetta sé neitt nýtt,“ sagði Longoria. 

Eva Longoria var dugleg að sýna óléttukúluna á meðgöngunni.
Eva Longoria var dugleg að sýna óléttukúluna á meðgöngunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant