Steve Levitan, annar höfunda Modern Family, er ósáttur með fréttaflutning Fox News af aðgerðum ríkistjórnarinnar í innflytjendamálum. Hann skrifaði á Twitter í gær að hann vilji færa framleiðslu þáttanna frá 20th Century Fox. Þættirnir eru sýndir á ABC en framleiðslan er í höndum 20th Century Fox. Hann vill ekki að þættirnir sem hann skrifar séu í tengslum við Fox fjölmiðlasamsteypuna.
I look forward to seeing #ModernFamily through to the end and then, sale or no sale, setting up shop elsewhere.
— Steve Levitan (@SteveLevitan) June 19, 2018
Í Bandaríkjunum ríkir ófremdarástand hvað varðar innflytjendamál en í vikunni hafa borist fréttir af ómannúðlegum aðgerðum Bandaríkjamanna á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.