Skotinn í mótleikkonu sinni í leyni

Orlando Bloom var skotinn í Cate Blanchett þegar þau léku …
Orlando Bloom var skotinn í Cate Blanchett þegar þau léku saman í Hringadróttinssögu. mbl.is/AFP

Leikarinn Orlando Bloom viðurkenndi í þættinum The Late Late Show að hann hefði verið skotinn í Cate Blanchett þegar þau voru við tökur á Hringadróttinssögu. Blanchett sem var einnig gestur í þættinum hafði ekki hugmynd um áhuga Bloom. 

Bloom sagði að persóna hans, Legolas, hefði verið skotinn en svo hefði hann líka verið mjög skotinn í henni. Bloom tjáði tilfinningar sínar hins vegar aldrei þar sem Blanchett er eldri. Í raun er Blanchett átta árum eldri en Bloom sem var bara rétt skriðinn yfir tvítugt þegar tökur hófust. 

Blanchett rifjaði einnig upp fyrsta skiptið sem hún hitti Bloom en þá var hann í gervi. Þegar þau hittust hins vegar aftur í gleðskap þekkti hún hann ekki án síða hársins og bláu augnanna.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant