Slagsmál og óeirðir brutust út við óformlega minningarathöfn rapparans XXXTentacion í miðborg Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. Yfir þúsund manns komu saman til að minnast rapparans, en hann var skotinn til bana á Miami Beach á mánudaginn. Átökin urðu nokkuð hörð og henti fólk steinum, flöskum og öðrum lausamunum að lögreglunni.
Sjóvarpsstöðin NBC í Los Angeles birti myndband af óeirðunum á Twitter síðu sinni. Þeir sem voru viðstaddir minningarathöfnina hafa einnig birt myndbönd á YouTube.
Watch Live: Hundreds are gathering at Melrose and Spaulding for the late rapper @xxxtentacion https://t.co/aQYR0h0ryt pic.twitter.com/sgM7xC5tA7
— NBC Los Angeles (@NBCLA) June 20, 2018