Rapparinn Nicki Minaj var aðeins 5 ára þegar hún kom með foreldrum sínum til Bandaríkjanna. Hún er fædd í St. James í Trínidad og Tóbagó árið 1982. Þau voru ólöglegir innflytjendur þegar þau komu til landsins. Fleiri stjörnur hafa deilt sögum sínum sem ólöglegir innflytjendur í Bandaríkjunum til að vekja athygli á ástandinu sem ríkir þar. Stefna forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur verið á milli tannanna á fólki síðustu daga en ómannúðlegum aðferðum hefur verið beitt á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Ung börn eru aðskilin foreldrum sínum daglega og látin dúsa í búrum.
A post shared by Barbie® (@nickiminaj) on Jun 20, 2018 at 11:54am PDT