Þjófur komst yfir kreditkort leikkonunnar Demi Moore í mars síðastliðnum. Þjófurinn, David Matthew Read, er ekki sá eyðslugrennsti, en á aðeins nokkrum vikum eyddi hann 169 þúsund bandaríkjadölum, eða rúmlega 18 milljónum íslenskra króna. Hann fór meðal annars í Saks Fifth Avenue og Nordström í miðborg Los Angeles með kortið, þar sem hann náðist á öryggismyndavélar.
Read kom höndum yfir kortið í póstsendingu. Þá hafði hann tillynnt kortið hennar týnt og fylgdist svo með sendingunni. Lögreglan nappaði þjófinn í apríl og situr hann nú í fangelsi í Los Angeles og bíður eftir að mál hans verði tekið fyrir.