Kanadíska leikkonan Sandra Oh, sem margir kannast við úr þáttunum Grey's Anatomy, er fyrsta konan af asískum uppruna til að hljóta tilnefningu sem besta leikkonan í aðalhlutverki í dramaþáttum.
Oh er tilnefnd fyrir hlutverk sitt í þáttunum Killing Eve sem BBC framleiðir. Hún hefur áður verið tilnefnd fyrir túlkun sína á Christina Yang í læknaþáttunum Grey's Anatomy, en þá sem aukaleikkona.
Á Emmy-verðlaunahátíðinni í fyrra var Donald Glover fyrsti svarti maðurinn til að vinna Emmy-verðlaun fyrir leikstjórn gamanþátta. Þá var Lena Waithe fyrsta svarta konan til að vinna Emmy-verðlaun fyrir leikstjórn dramaþátta.