Destiny's Child-stjarna leitar sér hjálpar

Michelle Williams var með Beyoncé í hljómsveitinni Destiny's Child.
Michelle Williams var með Beyoncé í hljómsveitinni Destiny's Child. AFP

Destiny's Child-stjarnan Michelle Williams greindi frá því í gær að hún hefði sjálf farið og leitað sér hjálpar vegna þunglyndis. TMZ greinir frá því að hún hafi innritað sig sjálf á geðheilbrigðisstofnun vegna þunglyndis.  

Söngkonan greindi sjálf frá ákvörðun sinni á Instagram. Þar segir hún að í mörg ár hafi hún helgað sig því að auka meðvitund um geðheilbrigði og hvatt fólk til þess að læra inn á hvenær er tími til þess að leita sér hjálpar. „Nýlega hlustaði ég á sömu ráð og ég hef gefið þúsundum um heiminn og leitaði hjálpar frábærs heilbrigðisstarfsfólks.“

Tina Knowles, móðir Beyoncé, sendi Michelle kveðju og sagðist vera stolt af henni og það sama gerði söngkonann Solange Knolews, systir Beyoncé. 



skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant