Lífið er töluvert skemmtilegra hjá forsetanum fyrrverandi Barack Obama en eftirmanni hans Donald Trump. Obama er nú staddur í Afríku, en hann hóf ferð sína í Keníu þar sem hann mætti til opnunar íþrótta- og verkmenntamiðstöðvar í Siaya. Á opnunarhátíðinni stóð forsetinn fyrrverandi upp úr sæti sínu og dansaði við tónlistina ásamt systur sinni, Auma, og stjúplangömmu sinni.
Obama er ættaður frá Keníu en faðir hann fæddist þar. Hann kom síðast til landsins árið 2015 á meðan hann gegndi embætti. Obama hélt áfram ferðalagi sínu eftir stutt stopp í Kenía og var viðstaddur árlega ráðstefnu um Nelson Mandela í Jóhannesarborg í Suður-Afríku á þriðjudaginn.
Barack Obama decides to throw in some of his own dance moves 🕺. #ObamaInKenya 🎼🎼 pic.twitter.com/7HtW2fpJkH
— NTV Kenya (@ntvkenya) July 16, 2018
Obama dancing in Kenya is the perfect antidote to today pic.twitter.com/mP7WqTTo7Q
— NowThis (@nowthisnews) July 17, 2018