Hnefaleikamaðurinn Floyd Mayweather vandaði rapparanum 50 Cent ekki kveðjurnar í færslu sem hann birti á Instagram á sunnudag. Mayweather snertir á mörgum málefnum í færslunni, skrifar um að sonur 50 Cent vilji ekki eiga samskipti við hann og að hann framleiði ekki lengur tónlist sem heyrist í útvarpi.
A post shared by Floyd Mayweather (@floydmayweather) on Jul 21, 2018 at 12:36pm PDT
Óljóst er hvað olli því að Mayweather birti færsluna en 50 Cent hefur svarað honum á sínum eigin Instagram aðgangi. Þar birtir hann mynd af Mayweather með tár í augunum og vísar í kærur á hendur Mayweather fyrir heimilisofbeldi.
A post shared by 50 Cent (@50cent) on Jul 21, 2018 at 2:33pm PDT