Leikarinn Ryan Reynolds segist vera að vinna í nýrri Home Alone-kvikmynd. Nýja kvikmyndin mun verða töluvert öðruvísi en fyrri myndirnar, en hún á að snúast um ungan mann á þrítugsaldri sem missir af flugi á leið í skíðaferð með vinum sínum. Ungi maðurinn fer því einn heim og ákveður að reykja maríjúana. Skömmu eftir að hann finnur fyrir áhrifum fer hann að heyra hljóð og heldur að einhver sé að brjótast inn, sem reynist síðan vera rétt.
Nýja myndin mun bera heitið „Stoned Alone“ eða „Skakkur heima“. Reynolds mun koma að framleiðslunni en Kevin Burrows og Matt Mider skrifuðu handritið. Ekki er búið að ráða í hlutverk kvikmyndarinnar, en Macaulay Culkin fór með aðalhlutverkið í upphaflegu Home Alone-kvikmyndunum.
Fyrsta Home Alone-myndin kom út árið 1990 og naut mikilla vinsælda og hjá sumum er það orðin órjúfanleg hefð að horfa á kvikmyndirnar yfir jólahátíðina.