Ed Westwick laus allra mála

Ed Westwick er laus allra mála.
Ed Westwick er laus allra mála. mbl.is/AFP

Saksóknarinn í Los Angeles hefur lokið nauðgunarrannsókn á Ed Westwick og verður leikarinn breski ekki kærður. Westwick var sakaður um að nauðga þremur konum á síðasta ári. Saksóknari lét málin niður falla fyrir helgi, en í tveimur málanna vantaði sönnunargögn. Það þriðja var látið niður falla vegna þess að konan sem kærði Westwick hvarf skyndilega og ekki næst í hana. Westwick neitaði öllum ásökunum um að hafa nauðgað konunum þremur.

Westwick fagnaði niðurstöðu saksóknarans og sást til hans á flugvelli með kærustu sinni og fyrirsætunni Jessica Serfaty. Westwick er hvað þekktastur fyrir að hafa túlkað persónuna Chuck Bass í unglingaþáttunum Gossip Girl. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson