„Hey kúreki, mig langar að ríða hestinum þínum“

Cardi B er tilbúin til að stunda kynlíf aftur eftir …
Cardi B er tilbúin til að stunda kynlíf aftur eftir barnsburð. skjáskot/@iamcardib

Rapparinn Cardi B er ekki þekkt fyrir að tala undir rós. Hún tjáði eiginmanni sínum, rapparanum Offset, og öllum heiminum í þokkabót, að hún sé tilbúin til að stunda kynlíf eftir barnsburð. 

Cardi B og Offset eignuðust sitt fyrsta barn saman, dótturina Kulture, 10. júlí síðastliðinn og segist Cardi B vera meira en tilbúin til að stunda kynlíf aftur. Aðdáandi hennar ýjaði að því að Cardi B væri tilbúin að búa til sitt annað barn en hún sagðist vera síður en svo tilbúin í það. 

Rapparinn hefur ekki farið leynt með það að móðurhlutverkið sé erfitt og birtir myndir af svefnlausum nóttum. Hún hætti nýverið við að fara í tónleikaferðalag með tónlistarmanninum Bruno Mars. Þá sagði hún að hún vilji ekki vera án dóttur sinnar og að læknirinn hennar hafi sagt henni að það myndi ekki vera gott fyrir heilsu dóttur hennar að fara með í tónleikaferðalag. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant