Jennifer Aniston er ekki í ástarsorg

Jennifer Aniston er ekki í ástarsorg.
Jennifer Aniston er ekki í ástarsorg. AFP

Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston er orðin þreytt á sögusögnum um sjálfa sig og sagði í viðtali við InStyle að hún sé ekki lengur í ástarsorg. Aniston og eiginmaður hennar Justin Theroux hættu saman í febrúar. Hún prýðir forsíðu InStyle í september þar sem hún tjáir sig meðal annars um sambandsslitin og sögusagnir um af hverju hún eigi ekki börn. 

Jennifer Aniston hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að eiga ekki börn og eiga ekki í langtímasamböndum með karlmönnum. Hún er sögð vera eigingjörn og einblína einungis á frama sinn. Án þess að fara út í smáatriði segir hún „Þetta eru ónærgætnar ályktanir. Enginn veit hvað gengur á bak við luktar dyr. Engum dettur í hug að þetta geti verið viðkvæmt málefni fyrir mig og maka minn. Þau vita ekki hvað ég hef gengið í gegnum líkamlega eða andlega.“

„Konur eru undir þrýstingi að verða mæður, og ef þær verða ekki mæður, eru þær gölluð vara. Kannski er minn tilgangur á þessari jörð ekki að fjölga mér. Kannski hef ég annan tilgang?“ segir Aniston.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson