Nýjasta auglýsing Áttunnar hefur verið harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum, en myndbandið var birt á Facebook-síðu Áttunnar í gær. Í auglýsingunni er tilboð á „Áttuborgaranum“ á matseðli Íslensku hamborgarafabrikkunnar auglýst. Þar segist stúlkan í auglýsingunni ætla að fá „svartan, hnausaþykkan, sveittan“ hamborgara með leikrænum tilburðum.
Margir hafa gagnrýnt auglýsinguna og skrifar Sara Mansour á Twitter-síðu sinni að „fetísering á svörtum karlmönnum sé ekki svöl leið til að selja hamborgara“.
Fetísering á svörtum karlmönnum er ekki svöl leið til að selja hamborgara.
— Sara Mansour (@litlaljot) August 6, 2018
Tónlistarkonan Karó veltir því fyrir sér hversu margir hafi komið að auglýsingunni.
alltaf þegar ég sé nýja gjörsamlega lortaða auglýsingaherferð sem er td geðveikt racist eða sexist eða ehv þannig næs, þá hugga ég mig við það að conceptið þurfti að vera rætt og samþykkt af ógeðslega mörgum og að lokum framkvæmt 🤠👍🏼 þá líður mér miklu betur yes sir
— karó (@karoxxxx) August 7, 2018
Ég skil samt ekki eitt með áttu sketchinn. Hvar fengu Fabrikkann þá hugmynd að þetta væri góð auglýsing í ferlinu?
— Tómas G Jóhannsson (@TomasJohannss) August 7, 2018
Áttan: "tu getur smakkað attu borgarann á MIÐVIKUDAGINN (08.08.18) eða Blackface borgarann eins og við köllum hann"
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) August 6, 2018
Hekla Elísabet segir þau öll vera rekin úr Skóla lífsins.
EINKUNNASPJALD
— Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir (@a_hekla) August 7, 2018
Skrif: wat hver myndi eiginlega
Leikur: sársaukafullur
Samfélagslæsi: á svipuðu leveli og The Heffners
Comedy value: ekki til staðar
Sóun á gagnamagni: algjört
Samantekt:
Þið eruð öll REKIN úr skóla lífsins https://t.co/qi7ZA6kVRq