Wilson lofsamar nýtt hótel á Íslandi

Það fer ekki á milli mála að Wilson skemmti sér …
Það fer ekki á milli mála að Wilson skemmti sér konunglega í Bláa lóninu. Ljósmynd/Twitter

Ástralska leikkonan Rebel Wilson, sem dvalið hefur hér á landi síðustu daga, lofsamar hið nýja Retreat-hótel við Bláa lónið í nýrri færslu sinni á Twitter. Um er að ræða fimm stjörnu lúxushótel sem opnað var fyrr á þessu ári.

Leikkonan tekur sérstaklega fram að ekki sé um að kostaða auglýsingu að ræða, heldur hafi hún einfaldlega átt einstaklega góða stund þar. Wilson tekur fram að boðið sé upp á dásamlegt vatnsnudd og maturinn sé stórkostlegur. Þá hafi starfsfólkið undirbúið frábæra dagskrá fyrir hana og samferðafólk.

Wil­son hef­ur svo sannarlega ekki setið aðgerðalaus í Íslandsdvöl sinni, en hún hefur ferðast víða um land og meðal annars birt mynd­ir af sér í jökla­ferð, á Þing­völl­um og í fjór­hjóla­ferð. Og nú líka í Bláa lóninu.

Wil­son er hvað þekktust fyr­ir hlut­verk sitt í kvik­mynd­un­um Pitch Per­fect og Bri­des­maids. 




mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson