Hin 76 ára gamla Aretha Franklin er mjög veik og liggur inni á spítala í Detroit í Bandaríkjunum. Þetta staðfestir blaðamaðurinn Roland S. Martin, vinur söngkonunnar. Hann segir fjölskyldu og vini hennar vera hjá henni á sjúkrahúsinu. Ekki hefur verið gefið út hvaða veikindi Franklin glímir við.
Many of you are asking me to confirm the health status of @ArethaFranklin. Folks, I’ve known for several months. The Queen is surrounded by loved ones. That’s all I will say for now. Please keep her, the family and her longtime support staff in your prayers. pic.twitter.com/F6nMjHQjlP
— rolandsmartin (@rolandsmartin) August 13, 2018
Franklin hefur verið veik síðustu mánuði og hefur þurft að aflýsa tónleikum. Í mars síðastliðnum aflýsti hún öllum tónleikum sem hún hafði verið bókuð á. Hún kom síðast fram með Elton John í New York í nóvember 2017.
Í viðtali í fyrra sagðist hún ætla að setjast í helgan stein á árinu 2018 hvað varðar tónleikaferðalög en ætlaði að koma fram stöku sinnum. Hún hefur þó ekki komið fram á árinu heilsunnar vegna.